Nöldurhornið

Í framhaldi af hinu geysivinsæla neytendahorni sem var hér á hrollinum um daginn kemur nú nöldurhornið!! Hrollurinn er ferhyrndur einsog svo margt annað og verður spennandi að sjá hvað hin tvö hornin hafa gott að geyma.
Það sem mig langar til að nöldra yfir núna eru Akureyringar :) Já, eflaust mun það ekki slá í gegn hjá öllum. En eftir að hafa búið 6 ár í Reykjavík tók ég sérstaklega eftir því við að flytja hingað hvað umferðar og innkaupa- venjur eru öðruvísi. Það er alveg ótrúlegur munur að fara í bónus hérna miðað við bónus fyrir sunnan. Hér eru allir svo lengi, lesandi á pakkana og dólandi við þetta, passa sig líka sérstaklega á að skilja innkaupakerruna sína eftir þannig hún loki örugglega ganginum og enginn komist framhjá og eru bara einfaldlega allstaðar fyrir manni. Það er varla að maður hætti sér inní kælinn nema vel klæddur, því það gæti tekið nokkra klukkutíma að komast í gegn, maður gæti misst tær og fingur sökum kuls :) Ég var til dæmis á fá mér Hagkaups kjúlla í gær, sem fæst nú ekki lengur í Reykjavík (einn plús þar) og sá sem var á undan mér var svo lengi að velja sér bita að það var farið að slá í þá þegar hann var loksins búinn. Ég nennti ekki að bíða eftir því þannig ég fór og náði mér í annað á meðan, en þegar ég kom aftur þá var annar kominn í kjúllann, sá var enn lengur! Með kerruna sína á ská sem lokaði ganginum að sjálfsögðu. Svo þurfti ég að bíða í svona 5mín á kassanum, því það var einhver gella á undan með vesen útaf einhverri peysu, eitthvað í sambandi verðið og lét sækja fyrir sig annan lit og keypti svo hvoruga, til að trompa allt vippaði hún svo upp starfsmannaskírteinunu sínu og fékk afslátt, jájá! Svo leiðist mér líka hvað maður hittir alltaf einhvern í hverri einustu ferð sem maður kannast við, en á mörkunum með hvort maður eigi að heilsa fólkinu eða ekki, og alltaf einhverjir líka sem maður þekkir alveg. Sakna þess að geta farið ógreiddur og nývaknaður í rifnum jogginggalla í búð og þurfa ekki að þekkja neinn ;)
Svo er umferðin líka eitthvað svo hæg hérna, og ótillitssöm. Það eru allir að troða sér eitthvað og ekkert að spá í að hleypa neinum, voða sparsamir á stefnuljósin finnst mér.
Maður er greinilega orðinn algjör borgar-rotta á þessum stutta tíma fyrir sunnan ;) vona að ég venjist þessu hérna áður en ég missi vitið og verð leiddur út úr bónus í spennitreyju ;)
Nissafréttir:
Nissi hefur það gott hérna úti á plani, sáttur með sinn fulla bensíntank og í skýjunum yfir því að vera straumlaus og þurfa ekki að keyra neitt :S .. en rafgeymirinn var bara tómur á föstudaginn fyrir viku þegar ég ætlaði að nota bílinn og ónýtur í þokkabót.
Ég fór með hann í hleðslu, og eftir 3 daga hafði ekkert komið inná hann, og sýrumæling sýndi að hann væri ónýtur. Ég keypti þennan geymi notaðann hjá vöku í október, eftir að mínum hafði verið stolið. En hann hefur greinilega ekki verið betri en þetta. Þannig ef það á einhver rafgeymi á lausu þarna úti, þá vantar mig einn, er tilbúinn að borga í blíðu og eitthvað smá í peningum ;)
Vatnsberi: Það mun reynast þér þreytandi að ná ekki utan um alla þá hluti, sem þú vilt koma frá í dag. Á hinn bóginn þarf ekki öllum að líka við ykkur.