Neinei, Nissi er ekki með HPV vírusinn, heldur splæsti ég á hann nýjum rafgeymi núna um mánaðarmótin. Geymirinn er framleyddur af VARTA ... ég veit ótrúlega fyndið ;) Ég var búinn að vera straumlaus síðan 6. mars og var ekki að höndla það neitt rosalega vel, þvílíkur munur að geta núna farið hvert sem er og hvenar sem er.
Annars er nú lítið að frétta, mig er farið að hlakka svoltið til páskana, það er alltaf fjörugt skrall þá, þetta er yfirleitt einsog versló, bara meiri snjór. Held að kvótinn sé að fara bara 2x út þá, miðað við að það eru 4-5 kvöld í boði, maður þarf að spara sig fyrir suðurferðina sem er helgina eftir páska. Maður verður jafnvel þar í 2 vikur, ef allt gengur eftir. Bróðir minn er að skíra og ferma þessa sömu helgi eftir páska, en sitthvort barnið þó ;)
Ég held ég sé að nálgast heimsmet í sjónvarpsglápi, er allavega orðin íslandsmeistari innanhúss ;) Það er svo mikið af þáttum í gangi að það er alveg full vinna að komast í gegnum þetta allt. Held að Lost sé klárlega sá besti þessa dagana. Sá leiðinlegasti og ég horfi ekki á hann er The Gilmore Girls! Hvað er málið með þær?
Ef ég gleymi sjónvarpinu á og er kannski í tölvunni þá fer það yfirleitt ekkert í taugarnar á mér, en ef gilmore girls eru á þá verð ég svo pirraður á suðinu í þeim að ég verð að skipta um stöð. Hefur einhver tekið eftir því hvað þær ná mörgum orðum á mínútu?? Ég er viss um að handritið þeirra er janfnþykkt og símaskráin fyrir einn þátt. Þær tala STANSLAUST! eða tuða! Meiraðsegja voru þær að æfa skylmingar um daginn sem ég sá óvart, og þær töluðu allan tímam meðan þær voru að skylmast. Þær eru 2x á dag á einni sky stöðinni og á rúv líka, og mér finnst bara alltaf þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá séu þær þarna, tuðandi á fullu. Ég bara trúi ekki að einhver geti horft á heilann þátt með þeim án þess að missa vitið. .... hmm þetta hefði kannski frekar átt heima í nöldurhorninu :)
Vatnsberi: Vatnsberinn hefur tamið sér að takast á við vandamál um leið og þau verða. Mundu að ekki er allt gull sem glóir og að sígandi lukka er best.
Comments (3)
þú ert að blogga um Gilmore Girls....
Verður það eiithvað sorglegra en það?
Posted by Birkir | 9. apríl 2009 kl 01:04
Þær eru bara svo merkilega leiðinlegar að þær eiga skilið að láta blogga um sig, það er ekkert sorglegt við það ;)
Posted by almar | 9. apríl 2009 kl 14:14
2 vikur í rvk, eithvað beilaðirðu á því, herra beiler, pffff gilmore girls, ég veit ekki einu sinni hvað það er, jesús pétur....
Posted by Helga | 22. apríl 2009 kl 01:53