hrollur.net
Hrollur.com
   <summary> Er kominn aftur í allri sinni dýrð og tekur við af þessari síðu. Öll bloggin hafa verið flutt yfir og ekki lengur hægt að skrá komment hérna. Sjá nýju síðuna hér: http://www.hrollur.com/...</summary>
Er kominn aftur í allri sinni dýrð og tekur við af þessari síðu.  
Öll bloggin hafa verið flutt yfir og ekki lengur hægt að skrá komment hérna.
Sjá nýju síðuna hér: http://www.hrollur.com/
Varta í Nissa
   <summary>Neinei, Nissi er ekki með HPV vírusinn, heldur splæsti ég á hann nýjum rafgeymi núna um mánaðarmótin. Geymirinn er framleyddur af VARTA ... ég veit ótrúlega fyndið ;) Ég var búinn að vera straumlaus síðan 6. mars og var ekki...</summary>
      <![CDATA[Neinei, Nissi er ekki með HPV vírusinn, heldur splæsti ég á hann nýjum rafgeymi núna um mánaðarmótin.  Geymirinn er framleyddur af VARTA ... ég veit ótrúlega fyndið ;)  Ég var búinn að vera straumlaus síðan 6. mars og var ekki að höndla það neitt rosalega vel, þvílíkur munur að geta núna farið hvert sem er og hvenar sem er.
Annars er nú lítið að frétta, mig er farið að hlakka svoltið til páskana, það er alltaf fjörugt skrall þá, þetta er yfirleitt einsog versló, bara meiri snjór.  Held að kvótinn sé að fara bara 2x út þá, miðað við að það eru 4-5 kvöld í boði, maður þarf að spara sig fyrir suðurferðina sem er helgina eftir páska.  Maður verður jafnvel þar í 2 vikur, ef allt gengur eftir.  Bróðir minn er að skíra og ferma þessa sömu helgi eftir páska, en sitthvort barnið þó ;)
Ég held ég sé að nálgast heimsmet í sjónvarpsglápi, er allavega orðin íslandsmeistari innanhúss ;)  Það er svo mikið af þáttum í gangi að það er alveg full vinna að komast í gegnum þetta allt.  Held að Lost sé klárlega sá besti þessa dagana.  Sá leiðinlegasti og ég horfi ekki á hann er The Gilmore Girls!  Hvað er málið með þær?  Ef ég gleymi sjónvarpinu á og er kannski í tölvunni þá fer það yfirleitt ekkert í taugarnar á mér, en ef gilmore girls eru á þá verð ég svo pirraður á suðinu í þeim að ég verð að skipta um stöð.  Hefur einhver tekið eftir því hvað þær ná mörgum orðum á mínútu??  Ég er viss um að handritið þeirra er janfnþykkt og símaskráin fyrir einn þátt.  Þær tala STANSLAUST! eða tuða!  Meiraðsegja voru þær að æfa skylmingar um daginn sem ég sá óvart, og þær töluðu allan tímam meðan þær voru að skylmast.  Þær eru 2x á dag á einni sky stöðinni og á rúv líka, og mér finnst bara alltaf þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá séu þær þarna, tuðandi á fullu.  Ég bara trúi ekki að einhver geti horft á heilann þátt með þeim án þess að missa vitið.  .... hmm þetta hefði kannski frekar átt heima í nöldurhorninu :)
Vatnsberi: Vatnsberinn hefur tamið sér að takast á við vandamál um leið og þau verða. Mundu að ekki er allt gull sem glóir og að sígandi lukka er best.]]>
Nöldurhornið
   <summary> Í framhaldi af hinu geysivinsæla neytendahorni sem var hér á hrollinum um daginn kemur nú nöldurhornið!! Hrollurinn er ferhyrndur einsog svo margt annað og verður spennandi að sjá hvað hin tvö hornin hafa gott að geyma. Það sem mig...</summary>
Í framhaldi af hinu geysivinsæla neytendahorni sem var hér á hrollinum um daginn kemur nú nöldurhornið!!  Hrollurinn er ferhyrndur einsog svo margt annað og verður spennandi að sjá hvað hin tvö hornin hafa gott að geyma.
Það sem mig langar til að nöldra yfir núna eru Akureyringar :)  Já, eflaust mun það ekki slá í gegn hjá öllum.  En eftir að hafa búið 6 ár í Reykjavík tók ég sérstaklega eftir því við að flytja hingað hvað umferðar og innkaupa- venjur eru öðruvísi.  Það er alveg ótrúlegur munur að fara í bónus hérna miðað við bónus fyrir sunnan.  Hér eru allir svo lengi, lesandi á pakkana og dólandi við þetta, passa sig líka sérstaklega á að skilja innkaupakerruna sína eftir þannig hún loki örugglega ganginum og enginn komist framhjá og eru bara einfaldlega allstaðar fyrir manni.  Það er varla að maður hætti sér inní kælinn nema vel klæddur, því það gæti tekið nokkra klukkutíma að komast í gegn, maður gæti misst tær og fingur sökum kuls :)  Ég var til dæmis á fá mér Hagkaups kjúlla í gær, sem fæst nú ekki lengur í Reykjavík (einn plús þar) og sá sem var á undan mér var svo lengi að velja sér bita að það var farið að slá í þá þegar hann var loksins búinn. Ég nennti ekki að bíða eftir því þannig ég fór og náði mér í annað á meðan, en þegar ég kom aftur þá var annar kominn í kjúllann, sá var enn lengur! Með kerruna sína á ská sem lokaði ganginum að sjálfsögðu.  Svo þurfti ég að bíða í svona 5mín á kassanum, því það var einhver gella á undan með vesen útaf einhverri peysu, eitthvað í sambandi verðið og lét sækja fyrir sig annan lit og keypti svo hvoruga, til að trompa allt vippaði hún svo upp starfsmannaskírteinunu sínu og fékk afslátt, jájá!  Svo leiðist mér líka hvað maður hittir alltaf einhvern í hverri einustu ferð sem maður kannast við, en á mörkunum með hvort maður eigi að heilsa fólkinu eða ekki, og alltaf einhverjir líka sem maður þekkir alveg.  Sakna þess að geta farið ógreiddur og nývaknaður í rifnum jogginggalla í búð og þurfa ekki að þekkja neinn ;)
Svo er umferðin líka eitthvað svo hæg hérna, og ótillitssöm.  Það eru allir að troða sér eitthvað og ekkert að spá í að hleypa neinum, voða sparsamir á stefnuljósin finnst mér.
Maður er greinilega orðinn algjör borgar-rotta á þessum stutta tíma fyrir sunnan ;) vona að ég venjist þessu hérna áður en ég missi vitið og verð leiddur út úr bónus í spennitreyju ;)
Nissafréttir:
Nissi hefur það gott hérna úti á plani, sáttur með sinn fulla bensíntank og í skýjunum yfir því að vera straumlaus og þurfa ekki að keyra neitt :S  .. en rafgeymirinn var bara tómur á föstudaginn fyrir viku þegar ég ætlaði að nota bílinn og ónýtur í þokkabót.  Ég fór með hann í hleðslu, og eftir 3 daga hafði ekkert komið inná hann, og sýrumæling sýndi að hann væri ónýtur.  Ég keypti þennan geymi notaðann hjá vöku í október, eftir að mínum hafði verið stolið.  En hann hefur greinilega ekki verið betri en þetta.  Þannig ef það á einhver rafgeymi á lausu þarna úti, þá vantar mig einn, er tilbúinn að borga í blíðu og eitthvað smá í peningum ;)
Vatnsberi: Það mun reynast þér þreytandi að ná ekki utan um alla þá hluti, sem þú vilt koma frá í dag. Á hinn bóginn þarf ekki öllum að líka við ykkur.
hrollarnir báðir fluttir
   <summary>Ég splæsti í ódýra hýsingu handa hrollinum, því ég er alltaf að flytja og nenni ekki að hafa suðandi netþjón í herberginu hjá mér. Sú hýsing er í London en í gegnum íslenskt fyrirtæki. Mér fannst alveg tilvalið að styrkja...</summary>
      <![CDATA[Ég splæsti í ódýra hýsingu handa hrollinum, því ég er alltaf að flytja og nenni ekki að hafa suðandi netþjón í herberginu hjá mér.  Sú hýsing er í London en í gegnum íslenskt fyrirtæki.  Mér fannst alveg tilvalið að styrkja vini okkar þarna í Bretlandi ;)  ... og vænlegt að hafa hrollinn á netþjónabúi sem er örugglega knúið með kolabrennslu eða kjarnaorku.  Þannig að hver músasmellur brennir kannski einum kolamola og styður þannig við "global warming" .. veitir ekki af að fá nokkrar gráður í plús hérna þessa dagana, kannski minna að skafa og svona hehe.  Þó svo að þetta séu alveg topp netþjónar, þá er þetta frekar svifaseint finnst mér.  Er mikið að pæla í að fá einhverja hýsingu frekar innanlands.  Þó það hafi verið helvítis bras að flytja síðuna, eða gagnagrunninn, þá verður það lítið mál svona í annað skiptið og tekur enga stund. 
Svo er ég líka fluttur, kominn í B5, eða Bjarkarlund 5.  Þar býr systir mín ásamt manninum sínum og hundinum Tuma.  Mig hefði aldrei grunað hvað er gaman að svona hundum, hef alltaf bara búið með kisum, þær eru allt örðuvísi.  Æðislegt hvað hann tekur alltaf vel á móti manni þegar maður kemur heim og svona. 
Ég var líka það heppinn að þau eru með gervihnattadisk, svo ég missi nú ekki af neinu í sjónvarpinu.  Annars hefði ég verið vís með að troða disk einhversstaðar á kofann.  Var að tengja í kvöld og get loksin tekið gleði mína á ný ;) ... reyndar þurfti ég að strengja kapalinn mjög svo ósmekklega eftir miðjum húsveggnum til að koma honum í herbergið mitt, það er ekkert rosalega flott á nýju húsinu, en kemur í ljós hvort maður taki hann eða reyni að ganga betur frá þessu.
Vinna, það er eitthvað minna.  Maður er alltaf bara atvinnulaus, eða að skrifa doctorsritgerð einsog Georg Bjarnfreðarson kallaði það.  Mér leiðist það reyndar ekkert, þó myndi ég nú frekar vilja vera í vinnu og eiga meiri pening, þarf að skoða það eitthvað nánar.
Svo eignaðist ég lítinn frænda 2. Febrúar.  Bróðir minn var að koma með sitt þriðja barn.  Ég hef nú ekki hitt guttann enn þar sem hann fæddist og býr í bandaríkjunum, en mamma er farin út að kíkja á litla kallinn.  Ég á von á að sjá hann um páskana, þegar þau koma til landsins.
Vatnsberi: Samskipti við stofnanir eða hið opinbera koma flatt upp á þig á einhvern hátt. Farðu þér hægt í að velja þér trúnaðarvini sérstaklega af hinu kyninu.]]>
Akureyringur
   <summary> Þá er maður mættur í sveitina sína gömlu. Flutningar gengu vel og nissi fór bara létt með þetta norður, þó það væru nokkurhundruð kíló af drasli í bílnum. Dótið er reyndar enn í bílnum síðan á föstudag, en hver...</summary>
Þá er maður mættur í sveitina sína gömlu.  Flutningar gengu vel og nissi fór bara létt með þetta norður, þó það væru nokkurhundruð kíló af drasli í bílnum.  Dótið er reyndar enn í bílnum síðan á föstudag, en hver pælir í því svosem :)  Mér fannst ógeðslega erfitt að burðast með alla þessa kassa, stóla og borð, sjónvörp og græjur, og er fyrst núna að losna við strengi og bakverki síðan í flutningunum.  Maður er búinn að safna að sér alltof miklu drasli, það  mætti henda svona 70% af dótinu og maður myndi ekki sakna þess neitt.  Ég fyllti heila geymslu í Reykjavík, ætli hún hafi ekki verið svona 6 fermetrar, og það var alveg uppí loft!  Nissa troðfyllti ég líka, það þétt að ég var farinn að troða skóm í göt sem ég sá á staflanum, því annars hefði skórnir mínir ekki komist með.  Og þegar ég var lagður af stað fattaði ég mér til mikillar skelfingar á einu hringtorginu að ég sá ekki út um hægri hliðina, hvorki úr glugga né spegli.  Það var ekki alveg að virka þannig ég bætti einni dýnu í geymsluna fyrir sunnan, svo ég sæi  nú út á leiðinni heim.  En ferðin sjálf gekk mjög vel, fyrir utan þoku sem var svona 30% af allri leiðinni, mjög þykk.  Smá vesen á nissa reyndar, en eftir innbrotið þá er rafmagnskerfið í smá rugli, háu ljósin virkuðu ekki alveg sem skyldi, en tókst að fá þau til að virka á leiðinni, þarf eitthvað að kíkja á þetta greinilega.  
Hrollinum kom ég í loftið í gær, setti serverinn niður í bílskur bara, með þráðlausu korti, það er ekki að virka neitt rosalega vel, bæði lélegt samband og þráðlausa kortið seinvirkt, en þetta dugar alveg þangað til ég flyt á næsta stað.  Er semsagt hjá mömmu núna, en flyt í Bjarkarlundinn til systur minnar og kallsins hennar einhverntímann í næstu viku.  Þar stefni ég á að vera nett blanda af Arthur Spooner og Ted Mosby, en þeir sem hafa séð How I met your mother og King of Queens ættu að þekkja þá ... held ég verði meiri Arthur samt hehe.  Það er hundur á heimilinu, þannig það ætti að vera hægt að fá svona hundalabbara fyrir okkur báða ;) 
Það er strax búið að testa djammið á Ak.  Fór í þetta fína partý á lau sem var helvíti gaman, skemmti mér að vísu ekki einsvel í bænum, þar sem ég vill alltaf bara fara í sjallann og leiðist yfirleitt ef ég fer á pöbbana.  
Svo fer þetta bara vera spurning um að finna sér einhverja vinnu hérna í sveitinni, ég er ekkert rosalega vongóður, en maður reynir allavega.  Þó það sé vissulega ekki hvatning til þess að hækka atvinnuleysisbæturnar svona.]]>
Janúarpistillinn
   <summary> Hrollurinn byrjaði nýja árið í netleysi, ég veit ekki hvort það boði mikla farsæld fyrir síðuna á árinu sem er að hefjast. En 1. Janúar kl c.a 8 um morguninn hætti serverinn hjá mér að ná sambandi við umheiminn...</summary>
      <![CDATA[ Hrollurinn byrjaði nýja árið í netleysi, ég veit ekki hvort það boði mikla farsæld fyrir síðuna á árinu sem er að hefjast.  En 1. Janúar kl c.a 8 um morguninn hætti serverinn hjá mér að ná sambandi við umheiminn og datt þar með hrollurinn út líka.  Ég var staddur fyrir norðan og ætlaði að njóta þess að "stríma" til mín sjónvarpsefni til að gera þynnkuna bærilegri, en þess í stað fékk ég að hafa áhyggjur af þessu netleysi, hvað hefði eiginlega gerst?  Væri rafmagnslaust og allt að skemmast í ísskápnum, hefði verið brotist inn og öllu rústað eða var netlöggan búin að loka tengingunni minni vegna mislöglegs niðurhals.  Þetta pældi ég mikið í.  Ekki var hægt að hringja í þjónustuverið, það var bara opið frá 1 - 4, ég uppgvötaði þetta um 5 leitið.  En föstudagskvöldið 2. jan þegar ég var mættur suður, sá ég að það var svosem í lagi með allt, allar þessar kenningar mínar voru rangar, routerinn náði bara ekki sambandi við netþjónustuna, en það var samt adsl merki á línunni.  Ég var búinn að ákveða að lykilorðið mitt hafði dottið út 1. jan, því það var svosem ekkert bilað. Og auðvitað var ekki hægt að fá það lagað, þar sem það vinna engir tæknimenn um kvöldin og um helgar hjá netveitunni minni og þurfti ég því að þjást í netleysi allt kvöldið :)  ... laugardaginn fór ég og sótti nýjann router til að komast þá allavega á netið, þangað til þetta lykilorð yrði lagað á mánudaginn.  Gallinn við að vera með þennan lánsrouter var að síðan mín virkar ekkert í honum og varla hægt að vera á torrent, þar sem þetta er allt harðlæst hjá þeim og ekki hægt að opna fyrir portin, nema hringja, og nennti því ekki fyrir einn dag.  Svo loks kemur mánudagur, og ég hringi frekar pirraður í netveituna, tæknimennirnir þar fullvissa mig um að lykilorðið sé í lagi, línan sé í lagi og ef það sé eitthvað að þá er það í stillingum hjá mér eða bilaður router ... og ég var bara "nei, það er ekki séns, þetta er pottþétt hjá ykkur".  Það var boðist til þess að stofna mig aftur í kerfinu og svona til að friða mig, meðan átti ég bara að bíða rólegur.  Á meðan ég beið datt mér í hug að velja þarna "restore factory settings" og setja inn stillingarnar aftur, og var svo pottþéttur á því að það myndi ekki virka, langaði bara rétt að prófa  ... og viti menn, uhh, þetta var bilað mín megin :o Þá hafði routerinn farið yfirum, líklegast útaf of mörgum torrent tengingum, og lagaðist ekkert við að vera tekinn úr sambandi eða endurræstur.  Þannig að ég mátti hringja með skottið á milli lappanna og segja "uhh, þetta var víst hérna meginn, þannig það þarf ekki að stofna nýtt lykilorð fyrir mig"
Meira vesen hefur líka gerst fyrir mig á þessu ári, sem er nú bara rétt vikugamalt.  En ég fór með Nissa litla á dekkjaverkstæði í dag til að láta setja undir hann nagladekkin, ekki seinna að vænna því það er nú alveg að koma vetur!  Fann dekkin mín og fanst þau bara í fínu ástandi, enda eiginlega aldrei undir bílnum :)  Fór svo með þau og lét skipta.  Á heimleiðinni datt mér í hug að kíkja í Hagkaup og fá mér eitthvað gott í kvöldmat, en ég var varla kominn kílómeter frá dekkjaverkstæðinu (á höfðanum) þegar það springur eitt dekkið á bílnum!! Og hvar er ég þá?? Jú, þá er ég á miðri Miklubrautinni klukkan 5!! Einmitt þegar umferðin er í hámarki :o Mér fannst vera alltof langt í næsta afleggjara hefði ég viljað komast af brautinni þannig ég kom mér bara í skjól á einni aðreininni og setti hazzardljósin á.  Þar hef ég sjaldan verið jafn skelkaður á æfinni.  Ég var semsagt á svipupum stað og Hagkaup, þar sem Miklabrautin er alveg 7 akreinar með þessari aðrein, og 80 eða 90 km hámarkshraða (allir á 100), rigning, dimmt og mikil umferð.  Það var einsog bílarnir föttuðu ekki að ég var stopp, þó ég væri þarna í kantinum með blikkljósin á.  Keyrðu alveg þvílíkt hratt alltaf upp að mér og sveigðu frá á síðustu stundu, sumir stoppuðu.  Svo sá ég alltaf í speglunum einn og einn sem var að nálgast á þvílíka hraðanum og greinilega vissi ekki að ég væri stopp og sveigðu frá á síðustu stundu, sem betur fer var þá laust pláss fyrir þá á næstu akrein við hliðina, annars hefði þetta endað illa..  Ég sá fljótt að þetta var kannski ekki alveg að virka og keyrði einhverja 200 metra á sprungna dekkinu til að komast í strætóskotið, sem er þarna bakvið Hagkaup, þar allavega var ég ekki í þessari brjáluðu umferð ... eða þangað til brjáluðu stætóarnir byrjuðu að koma!  Þeir eru snar!  En þarna hringdi ég einmitt í dekkjaverkstæðið og sagði þeim að ég hefði komist 1 km á dekkjunum og hvað væri í boði fyrir menn sem lenda í svoleiðis.  Þeir buðust til að senda mann með loft til að prófa pumpa í dekkið svo ég kæmist til baka, og var það gert.  Nema hvað að dekkið var alveg flatt og greinilega orðið eitthvað skakt á felgunni þannig þetta var vonlaust.  Setti hann því varadekkið mitt bara undir og sagði mér að koma aftur á verkstæðið.  Þeir eru ekkert rosalega skarpir þar, því ég fór bara á biðstofuna á meðan þetta yrði lagað, en þá kom einn og bað mig að sjá dekkið, því það væri ekkert að því, en það var varadekkið, sem þeir voru byrjaðir að affelga, það er á ljótri stálfelgu og ekkert líkt hinum dekkjunum... og SUMARDEKK!  En mitt dekk var víst með rifnum kanti, sem ég veit nú ekki hvernig gerist, en líklega hefur það verið þeim að kenna, þar sem mér var gefið eitthvað notað sólað nagladekk, sem var líka sett frítt undir bílinn.  Gamla dekkið var örugglega mikið betra, en þetta var svo loðið alltsaman, fékk aldrei að skoða það gamla einusinni.  En þetta ætti vonandi að koma mér norður í hálkunni sem verður líklega í næstu viku, það vantar allavega ekki frostið í kortunum þá.  Akureyri -23°  brrrrrr.
Ég býst við að keyra á fimmtudeginum norður, með fullan bíl að dóti, annað fer svo í geymslu.  Vona að það hafist alltsaman, og að ég finni einhvern til að bera með mér þungu hlutina, sjónvarpið útí bíl og svona, það hlýtur eiginlega að vera.  Annars kemur það örugglega allt í febrúarpistlinum, hvernig flutningarnir gengu, komst nissi alla leið norður og hvernig lífið sé á Akueryri ;)
Vatnsberi: Þú getur lært heilmargt um sjálfa/n þig af samræðum þínum við aðra í dag. Leyfðu þeim að flæða, þótt ekki sé það allt jafnskemmtilegt, sem þú upplifir.]]>
Jólahrollvekjan
   <summary> Eru ekki jólin að fara detta í hús með allri sinni gleði ;) Mig hlakkar nú alltaf mest til tímans milli jóla og nýárs, því þá er pakkavesenið allt að baki og aflsöppun og djamm tekið við. Ekki það...</summary>
      <![CDATA[ Eru ekki jólin að fara detta í hús með allri sinni gleði ;)  Mig hlakkar nú alltaf mest til tímans milli jóla og nýárs, því þá er pakkavesenið allt að baki og aflsöppun og djamm tekið við.  Ekki það að ég sé neitt úrvinda á því að vera í endalausu sumarfríi, en það verður líka gaman að geta kallað það jólafrí núna.  Plönin eru alltaf að breytast, á dagskránni núna er Reykjavíkurdjamm 19.des (því ég hef nú ekki djammað hér í 5 vikur í röð!!) ...já, það er satt!, verð að ná einu góðu áður en ég fer "heim". Og daginn eftir, eða 20.des ætlaði ég mér að bruna norður og jafnvel komast í sjallann á sálarball.  Veit þetta er nú fullmikil bjartsýni hjá mér að halda ég geti þetta allt sömu helgina, en eftir 5 vikna pásu heldég að það verði ekkert stórmál.  Ég er að reyna redda mér fari eða bílaleigubíl til þess að þurfa ekki að splæsa í umfelgun og bensín á nissa, hann er enn á sömmerunum ;)  því maður veður ekkert í seðlum svona þegar maður gerir ekki neitt.  Svo hafði ég hugsað mér að skella mér suður strax eftir áramót, til þess þá að flytja út úr íbúðinni minni og koma dótinu mínu fyrir í geymslu.  Þá skelli ég að sjálfsögðu vetrartuðrunum undir nissa og fyllann af bensíni, en janúar verður nú ódýrari mánuður heldur en desember, og ætti það nú að reddast.  Það hefði samt verið skemmtilegast að vera búinn að þessu, en held þetta sé eina leiðin.  Mér finnst samt ótrúlega leiðinlegt að flytja og þrífa, og ekki langt síðan ég gerði það síðast, en þetta verður maður víst að gera.  En munar allavega um að borga ekki leiguna í Reykjavík, heldur betur.  Þannig að maður verður orðinn Akureyringur aftur í byrjun janúar ef ekkert breytist, einsgott að það verði stuð :) 
Það væri gaman að fá að heyra af því ef einhver veit um geymslu á góðu verði fyrir sófa, rúm, eldhúsborð og stóla, tölvuborð og sófaborð, því sama hvað ég reyni þá kemst þetta ekki í nissa, eða í herbergið sem ég verð í fyrir norðan :)
Vatnsberi: Hver kunningi sem þú eignast reynir á félagsfærnina. 
Tilfinningar þínar láta þér líða vel og hugsa um lífið á jákvæðan hátt.]]>
Neytendahornið
   <summary> Dr.Hrollur hlýtur að geta verið með svona neytendahorn einsog Dr.Gunni. En það sem sló sálu mína utanundir um daginn var auglýsing frá kfc, uppáhalds veitingastaðnum mínum. "0 gr transfita!" Ég hef ekki þorað að fá mér skamt hjá þeim...</summary>
      <![CDATA[ Dr.Hrollur hlýtur að geta verið með svona neytendahorn einsog Dr.Gunni.  En það sem sló sálu mína utanundir um daginn var auglýsing frá kfc, uppáhalds veitingastaðnum mínum.  "0 gr transfita!"  Ég hef ekki þorað að fá mér skamt hjá þeim síðan ég sá þetta, vill frekar leifa góða bragðinu að lifa í minningunni en að skemma það með transfituleysi.  Ég viðurkenni það að ég veit svosem ekkert hvað hún gerir, annað en að setjast inní kransæðar og stýfla, en eitthvað hlýtir að vera gott við hana, mér dettur í hug einsog sykur í gosi ... og þá er kannski transfitulaus kfc einsog diet kók :o Það náttúrulega gengur ekki, það ætti allavega að vera þá hægt að fá transfitu með í lítilli dollu, svona einsog kokteilsósu, og kannski sprautu með, ef maðu skyldi vilja sprauta henni inní kjúllann ;)  Og hvað er svo málið með kartöflumúsina og hrísgrjónin!  Ef maður ætlar að vera í hollustunni, þá fer maður bara á grænan kost eða eitthvað, ekki skemma kfc :(  Ég ætlaði ekkert að væla yfir verðinu á honum, en nú kostar skammtuirnn 949 krónur og fer hækkandi, fyrir þann pening getur maður fengið kíló af kjúklingabitum, 2 lítra af pepsí, 1 kg af frönskum og stóra dollu af hrásallati í bónus, sem endist í matinn örugglega 4x.  Þannig að já, kannski mætti aðeins slá af verðinu hjá þeim, þarna í transfitulausa, kartöflumúsa og verðbólgukvetjandi kjúklingabitastaðnum.
Önnur gleðitíðindi, þó ekki fyrir hjartað, þá sá ég í einni af mörgum ferðum mínum í bónus, að þeir eru loks farnir að selja Red Bull!  Össss!  Það er nú besta blandið í bænum og veitir áfenginu hið fullkomna bragð, hressir, bætir, kætir og sprækir.  Smá hjartsláttartruflanir hafa aldrei skaðað neinn, er það nokkuð??  Ég sá nú ekki verðið, ætli dósin sé ekki á 200 kall eða svo, vonandi ekki mikið meira.  Sá líka euroshopper orkudrykk, hann kostaði 99 krónur, og ef ég þekki vini mína hjá euroshopper rétt, þá er þetta örugglega bara díselolía bragðbætt með ísvara :)  En svo er það líka annað, einsog með redbull, um leið og hann fæst hér í bónus þá fer mesti glansinn af honum og verður ekki eins spennandi einsog þegar hann fékst bara í útlöndum, líkt og m&m&m-ið forðum daga.
Jæja, núna er klukkan að ganga 10 að morgni til! 
Já, að morgni til.  Ég er í viðsnúningsprógrammi á líkamsklukkunni, en hún var farin að hallast aðeins meira að sofa út langt frammeftir degi, og sofna svo ekki á næturna fyrr en langt undir morgun.  Var farið að leiðast það og greip því gæsina þegar ég fann fyrir þreytu í gær klukkan 10 að fara bara að sofa!  Vaknaði líka klukkan 6 í morgun og er búinn að vera vakandi síðan hehe .. en samt drulluþreyttur, en má ekki leggja mig, því þá skemmist programmið, það er bara í háttin klukkan 1 í kvöld/nótt.  Maður þarf að hafa sólarhringinn réttann áður en ég byrja á vefsíðugerðarnámskeiðinu sem ég er að fara á í næstu viku, það verður örugglega ekki leiðinlegt, og hrollurinn á eftir að hafa gott af því, en þetta eru alveg 60 tímar, versna varla við það ... þannig það eru spennandi tímar framundan á hrollinum... ;) 
Án þess að hafa sótt námskeiðið smíðaði ég þetta script sem sést hér til hliðar, en þetta er beintenging við seðlabankann og sýnir raungengi krónunnar, einsog það er akkúrat núna! :)
Vatnsberi: Þér tekst vel upp við að finna eitthvað aðdáunarvert í fari fólksins í kringum þig. Haltu öllum verkefnum aðskildum og raðaðu þeim upp í forgangsröð.]]>
Blue
   <summary> Sama síðan, sama ruglið en nýtt útlit. Jájá, hrollurinn fór í smá makeover í vikunni, byrjaði með smá fikti sem endaði með þessum ósköpum. Þetta er svosem ekkert nýtt, skipti bara um liti, sama grindin á bakvið. Fannst þurfa...</summary>
      <![CDATA[ Sama síðan, sama ruglið en nýtt útlit.  Jájá, hrollurinn fór í smá makeover í vikunni, byrjaði með smá fikti sem endaði með þessum ósköpum.  Þetta er svosem ekkert nýtt, skipti bara um liti, sama grindin á bakvið.  Fannst þurfa svona vetrar-kulda-kreppulit á þetta hjá mér;)  ... á eftir að ákveða hvort ég hafi nokkuð farið yfir strikið með að skella íslandskortinu þarna á logoið.  Útlitið á því minnti mig nefnilega eitthvað svo á venus ... sem er nú heitasta plánetan í sólkerfinu, kannski viðeigandi að heitasta síðan á internetinu hafi þannig logo -hehe.
Annars er nú lítið að frétta, ég held ég verði atvinnulaus í allavega 5 mánuði í viðbót með þessu áframhaldi. Atvinnuástandið var lélegt í sumar, svo versnaði það, svo varð það mjög vont en núna er það vonlaust.  Það er varla að maður nenni að senda  umsóknir.  Ég var alveg að fara hreppa þessa fínu vinnu hjá ónefndu fyrirtæki, fór í viðtal og strax 2 dögum seinna var ég kallaður inn aftur og fékk að skoða allt og leist bara vel á.  Svo sögðust þau ætla hafa samband við mig og hringdu 3 dögum seinna, en þá var komið stopp á ráðningar hjá þeim, ég get fengið vinnuna... ef ég vill byrja í janúar... miðað við að ástandið hafi skánað þá.  Ég veit ekki hvort ég held þetta út þangað til, það eru að vísu bara 2 mánuðir í janúar, en verður ástandið skárra þá?   Annars er maður eiginlega búinn að gleyma hvernig er að vinna, veit allavega að ég get ekki séð af 9 klukkutímum af sólarhringnum í eitthvað svoleiðis rugl, nóg annað að gera:)
Stór galli við atvinnuleysið er að hafa ekki möguleika á að taka þátt í singing bee, ha! Ég meina afhverju ekki? Ég væri "so there" ;)  ... heyri Jónsa alveg fyrir mér kynna þáttinn: "í kvöld keppir dominos við atvinnulausa!!!!" Jájá, svo finnst mér alveg vanta svona starfsmannafélag hjá atvinnulausum, það eru engin bjórkvöld eða neitt svoleiðis, ekkert jólaglögg :(  
Þetta er kannski eitthvað sem ég tek að mér bara, hringi í jó-sig (Jóhönnu Sigurðardóttur) á morgun og ber þetta undir hana, hún verður þokkalega til í þetta, enda svört.
Nissi er enn ekki með neinar græjur, þó svo að uppáhaldssystir mín hafi sent mér þennan fína geislaspilara til að setja í hann, ég hef bara ekki haft tíma (hef ekki nennt) að setja hann í, enda kalt úti og svona, dimmt líka.  Svo verður honum bara stolið ef ég set hann í.  Ég hef ekki enn fengið svar frá mínu tryggingarfélagi heldur hvort þeir bæti eitthvað, þeir hljóta koma sér undan þessu, en kemur í ljós.
En í þessu atvinnuleysi og kreppu hefur maður neyðst til að djamma bara aðrahverja helgi, sem er mjög leiðinlegt, gott samt að síðasta helgi var djammlaus, sem þýðir að næsta verður góð:)  Svo er það spurning hvort maður ætti að skella sér norður í viku kringum miðjan, bara svona til að fá einhvarja hreyfingu, er kominn með pullufar á síðuna eftir sófann minn, held ég eyði of miklum tíma þar.  Mikil pæling.
Vatnsberi: Þú býrð yfir krafti sem getur orðið öðrum hvatning til framkvæmda. Rangt! Þú munt fá heilmikið út úr því sem þér finnst vanalega þrautleiðilegt.
...sæææll, hvað þýðir þetta?? "Býrð yfir miklum krafti"...svo bara EEERRHHH!! WRONG!! ]]>
Nissi svívirtur ...
   <summary> ... og skilinn eftir í öngum sínum á plani BT-Skeifunnar um helgina!... er fyrirsögnin sem ég hefði viljað sjá á forsíðu fréttablaðsins á mánudag, en í stað þess var bara rætt um einhverja kreppu og endalaust volæði. En það...</summary>
      <![CDATA[ ... og skilinn eftir í öngum sínum á plani BT-Skeifunnar um helgina!... er fyrirsögnin sem ég hefði viljað sjá á forsíðu fréttablaðsins á mánudag, en í stað þess var bara rætt um einhverja kreppu og endalaust volæði.  En það var síðustu helgi sem ég ákvað í sakleysi mínu að skella mér norður í nokkra daga, og fékk til þess bílaleigubíl í skeifunni.  Mér fannst það nú ekki tiltökumál að geyma litla gullmolann minn þar rétt á meðan, enda vanur að leggja honum þarna og hef geymt hann þar nokkrusinnum yfir nótt áður.  En ekki var aðkoman falleg þegar ég kom aftur í borgina á miðvikudagsmorgun og ætlaði að sækja litla kaggann minn, en þá höfðu óprúttnir aumingjar brotist inní bílinn og hreinsað úr honum allt sem mögulegt væri að koma í verð, og skilið bílinn eftir ó-ökuhæfann.  Lásar bílsins höfðu verið þvingaðir upp með stóru skrúfjárni og þannig opnaður.  "Öflugt" viper þjófavarnarkerfið hefur ekki þótt stór hindrun fyrir bansetta glæpamennina þar sem þeir opnuðu bara húddið og rifu lúðurinn úr sambandi.  Eftiráséð hefði maður helst átt að tengja bara sprengju við það, þá hefði maður allavega náð þessum aumingjum.  En þeir tóku geislaspilarann, tvær bassakeilur, magnarann, alla afturhilluna með hátölurum, radarvarann og já, það hefur ekki dugað þeim því þeir tóku rafgeymi bílsins líka.  Upphaflega höfðu þeir reynt að taka bílinn, því svissinn er skemmdur eftir að hafa verið þvingaður með skrúfjárni.  Það er ekki auðvelt að eiga svona flottan bíl, get ég sagt ykkur :)  Hátt í 30 skrifaðir geisladiskar voru teknir líka, það kallar maður reyndar að skjóta sig í fótinn, því þeir sem þekkja mig og minn tónlistarsmekk kannski vita að það er engin gullaldartónlist þar á ferð hehe. En óhugnalegast þykir mér samt að þeir tæmdu hanskahólfið mitt, þar sem ég hef safnað saman allskyns kvittunum, reikningum og fleira í tæp 10 ár.  Reyndar veit ég bara ekki hvað það hafði nákvæmlega að geyma.
 Björtu hliðarnar eru hinsvegar þær að á meðan þeir tæmdu bílinn,  þar á meðal hólf sem geisldiskarnir voru í, tóku þeir ekki eftir varalykli bílsins sem þar var, ásamt fjarstýringu til að slökkva á þjófavarnarkerfinu og DÆLULYKLI!  Ég hefði síður viljað borga bensínið undir þá líka, og í öskubakka bílsins var alveg 500 kall í klinki og fjarstýringin sem þarf til að ræsa geislaspilarann... FEIS !! Það er nefnilega engin leið að kveikja á honum án þess að skjóta fyrst með henni, ef straumur hefur verið tekinn af bílnum eða tækið aftengt, þannig hann kemur engum að gagni nema ég fái hann aftur, þetta flöskuðu þeir á aumingjarnir.  Ég kom samt kagganum heim í gær, eftir að hafa fengið nýjann rafgeymi í bílinn og náð að liðka upp svissinn aftur.  Og það er svosem ekkert að bílnum annað en að það vantar græjurnar til að yfirgnæfa öll hljóðin sem nissi býr til við almennan akstur :)  Bílinn var náttúrulega ekkert í kaskó, og ekki með neina sérstaka græjutryggingu, en ég hef lagt inn kröfu hjá mínu tryggingafélagi um að fjölskyldutrygging mín bæti þetta að einhverju leiti, veit svosem ekkert hvernig það fer ... yfirleitt finna þeir alltaf eitthvað til að borga ekki  ... einsog: nú var þetta rauður bíll? Þeir falla ekki undir skilmálana (þó þeir séu bleikir að aftan).  Ég lifi samt í voninni um að þetta finnist í einhverju fíkniefnabælinu, og hef ég sent lögreglunni myndir af öllum hlutunum sem í bílnum var.  Þeir reyndar hringdu í mig strax í morgun, þá höfðu þeir fundið eitthvað Club Nokia kort skráð á mig sem hafði líklega verið í hanskahólfi bílsins, en það var í einhverju veski sem þeir höfðu undir höndum, en vildu ekki gefa meira upp, en sögðu mér samt að vera ekkert að gera mér miklar vonir, þó það hefði fundist. 
  Þannig að ef einhver veit um góðar græjur til sölu fyrir lítinn pening, tala nú ekki um að það séu mínar gömlu, þá myndi ég vilja vita af því.  En ég get allavega vottað það að það er ekki gaman að lenda í svona, og leiðinlegast ef þessir aumingjar komast upp með þetta.  En Nissi verður ekkert þjóðnýttur þó þetta hafi vissulega verið áfall fyrir hann, nú hefst bara  uppbyggingin ... ég held ég skilji núna hvernig þarna Róbert Wesmann líði eftir að hann keypti í Glitni einum degi fyrir kreppu, þetta er örugglega mjög svipað ;)
Vatnsberi: Þú elskar fólk sem kemur frá ólíkum heimum, og samskipti þeirra eru bara tilkomin vegna þín. Haltu boð fyrir nokkra uppáhalds vini þína.]]>
Tengdur
   <summary>Jæja, þá er hrollalingurinn kominn aftur í loftið eftir að hafa verið sambandslaus við umheiminn í meira en viku. Ég er ekki stór aðdáandi netveitunnar minnar einsog er, spurning um að skipta bara, þetta allavega gengur ekki. Hringdi í þá...</summary>
      <![CDATA[Jæja, þá er hrollalingurinn kominn aftur í loftið eftir að hafa verið sambandslaus við umheiminn í meira en viku.  
Ég er ekki stór aðdáandi netveitunnar minnar einsog er, spurning um að skipta bara, þetta allavega gengur ekki.  Hringdi í þá 5 daga í röð að bíða eftir viðgerð, alltaf var maður númer 17 í bið og tók símtalið um 30 mínútur.  Ég á samt eftir að kvarta meira, því hraðinn hjá mér er bara 
1 Mb/s, á að vera 4!  ... það náttúrulega gengur ekki, en skárra en ekkert samt.]]>
Epsoninn kominn í frí
   <summary>Epsoninn er sestur í helgann stein núna, vegna þess að ég var fyrir stuttu að eignast canonuna mína nýju ;) ... en uppáhalds fyrrverandi vinnufélagarnir mínir gáfu mér hana í kveðjugjöf. Massa græja með 10 milljón pixlum, face detection og...</summary>
      <![CDATA[Epsoninn er sestur í helgann stein núna, vegna þess að ég var fyrir stuttu að eignast canonuna mína nýju ;)  ... en uppáhalds fyrrverandi vinnufélagarnir mínir gáfu mér hana í kveðjugjöf.  Massa græja með 10 milljón pixlum, face detection og motion stabilazer svo eitthvað sé nefnt. Hlutir sem ekki var að finna í eppaling ;)  Og það besta er að hún er ótrúlega lítil og nett, og fer vel í vasa.  Spurnnig hvort maður fari ekki að setja inn fleiri myndir fyrir vikið, en það hefur verið hálfgerð gúrkutíð á hrollinum undanfarið. Það náttúrulega gengur ekki!!
Maður er staddur á Akureyrinni einsog er, mætti hingað til að fara í afmælispartý hjá Möggu, það var ekki leiðinlegt, byrjaði að sulla í ölinu um 7 leitið og kom ekki heim fyrr en 6 um morguninn, það var ágætis tími.  Svo er prógram alveg frammí miðjan september, en það er önnur útskrift og svo afmæli 6. og 12. sept. en það er bæði í reykjavík, þannig maður skellir sér suður núna næstu helgi. Canonan verður pottþétt með í för ;)
Vinna, það er eitthvað minna... ég er bara enn í "sumarfríi" alltaf að sækja um vinnur, en það er ekki mikið að gerast á markaðnum, maður heyrir ekki einusinni frá fyrirtækjunum, veit ekki hvað maður gerir ef þetta verður svona til lengdar, þá gæti maður þurft að flýja norður bara, allavega verður erfiðara að borga leiguna fyrir sunnan.  En mér leiðist samt ekki, enda horfi ég óhóflega mikið  á sjónvarpið, og endalaust mikið af þáttum að byrja núna, sé varla fram á það að komast yfir allt efnið þótt atvinnulaus sé hehe.  Held samt að ég hljóti nú að hreppa eitthvað gott.  
Nissi er enn sprækur og biður að heilsa, hann er bara í Reykjavík, hefur ekki haft mikið að gera í sumar, held ég hafi ekki tekið bensín síðan í júlí, enda er það svo dýrt og ekki fyrir hvern sem er að kaupa :)  ... veit ekki hvað það kostar núna, vill ekki einusinni vita það.
Vatnsberi: Einhver þér nákominn kemur þér skemmtilega á óvart. Þú ættir að skreppa út úr bænum, koma forgangsröðinni á hreint og koma til baka endurnærður á sál og líkama.]]>
Versló Smersló
   <summary> Það eru köngulær að herja á mína litlu íbúð, ég get ekki sagt að ég sé hrifinn af þeim. Síðast í gær þá lá ég inní stofu og sá eina koma út úr svefnherberginu, greinilega nývöknuð, teigði svona úr...</summary>
      <![CDATA[ Það eru köngulær að herja á mína litlu íbúð, ég get ekki sagt að ég sé hrifinn af þeim.  Síðast í gær þá lá ég inní stofu og sá eina koma út úr svefnherberginu, greinilega nývöknuð, teigði svona úr sér með fjórum löppum og klóraði sér í rassinum með einni hehe - nei ekki alveg, hún allavega lét einsog hún ætti heima hérna.  Ég samt vill helst ekki drepa þessi grey, þannig ég tók hana upp og henti út, hún situr örugglega enn fyrir utan geðveikt móðguð og skilur ekkert í þessu.  Á meðan sú sem fór með mér í sturtu í dag er látin, en hún var einstæð og barnlaus, blóm og kransar vel þegnir. Ég veit ekki hvort hún hafi druknað eða soðnað, ég fer allavega í mjög heitar og langar sturtur.  Ég reyndi nú ekki hjartahnoð á henni, heldur hjálpaði hræinu með vatninu í niðurfallið  ... greyið.  Svo sá ég eina í eldhúsglugganum um daginn, hún var glær! það var ógeðslegt, með hvítar lappir, annað hvort hefur hún verið á djamminu daginn áður, eða ekki mikið fyrir að tanna sig.  Og svo sá ég nokkra roðamaura um daginn, ... ginger bastards, það er enginn smá sprettur á þeim.  Ég fékk ekki einusinni flugu inn til mín á gamla staðnum í stóragerðinu, hélt alltaf að það væri útaf mörgum rafmagnstækjum í gangi á fáum fermetrum.  En ég er ekkert á kafi í skordýrum samt, hef bara lent í þessum 3 köngulóm á þessum 3 mánuðum sem ég hef búið hér, ég er líka í kjallara með lóðina alveg í glugganum, lifi þetta örugglega af... vonandi.
Svo er það versló, hvað á maður að gera af sér þá ??  Maður hefur nú varla efni á því í atvinnuleysinu að keyra einn norður og suður aftur í kreppu og bensínokri, plús það að djamma líka.  Spurning um að leita sér að fari bara.  Annars er ég ansi hræddur um að það verði lítið fjör, það er ágætis dagskrá, en mér líst bara ekkert á djammarana fyrir norðan, það eru engir eftir!!  Það vonandi rætist eitthvað úr því samt.  Það er ´80 þema í öllum bænum, allir með axlapúða og eitthvað, það gæti orðið fyndið.  Ný dönsk, sálin, eurobandið, páll óskar og fleiri að spila.  18 ára inná tjaldsvæðin, þannig að það má búst við mauraflóði í bænum, hefði ekkert á móti því að það væri 30 ára inná þau hehe ... nehhh
Annars er maður kominn með nett legusár, ligg gjörsamlega allan sólarhringinn fyrir framan sjónvarpið og borða snakk og nammi, veit ekki hvernig ég enda.  Ég er kominn með diskinn upp og sky pakkann loksins í gang, þannig mér leiðist nú ekki.  Reyni nú samt að fara út á hverjum degi í göngutúr, svona ef það er gott veður ... tók nú um 12 kílómetra í gær!! og geri aðrir betur.  Nissi nýskoðaði var nefnilega útá seltjarnarnesi eftir smá partý síðustu helgi (hann er alltaf á djamminu), þannig að mér datt í hug að tékka hvort ég kæmist ekki alla leið labbandi.  Ég tók með mér bæði pening í taxa og klink í strætó ef ég skyldi gefast upp, en ég fór létt með þetta.  Með útvarpið í eyrunum og vatnsflösku í hendinni arkaði ég þetta niðureftir á 3 og hálfum tíma, án þess að taka mér hlé, hefði getað labbað til baka líka hefði ég ekki verið kominn með blöðrur á tærnar :)  Svo fer svoltið fyrir stirðleika í löppunum núna, þannig ég fór ekkert út í dag.... en hafði það af að blogga þess í stað, og senda inn nokkrar atvinnuumsóknir... veitir ekki af.
Vatnsberi: Veraldleg auðæfi og andleg fágun tengjast. Oft þegar leitað er að öðru hvoru slæst hitt með í för. Þú þarft ekki að henda peningum þínum til að finna sálina.
hmm, hvaða peningum hehe...]]>
Nissi núllníu
   <summary> Undur og stórmerkikerti gerast enn, Nissi stóðst skoðun án athugasemda! Ég bjóst reyndar aldrei við öðru. Hann var nú reyndar með endurskoðun blessaður, þurfti að laga annað gat í gólfi og leka á vatnskassa. Nei hann er samt ekki...</summary>
      <![CDATA[ Undur og stórmerkikerti gerast enn, Nissi stóðst skoðun án athugasemda!  Ég bjóst reyndar aldrei við öðru.  Hann var nú reyndar með endurskoðun blessaður, þurfti að laga annað gat í gólfi og leka á vatnskassa.  Nei hann er samt ekki að ryðga í sundur, gólfið er úr einhverju trefjaplasti og það hefur örugglega skemst á svona bílalyftu, þegar maður skiptir um dekk og svona, en það nú samt kannski ekki alveg eins sterkt og það ætti að vera ;)  Eftir miklar vangaveltur með vatnskassann, leit að notuðum og leiðum til að gera við þennan ákvað ég bara að prófa svona duft sem maður setur á kassann í von um að stýfla gatið, eitthvað sem mér var sagt í skoðuninni að væri ekki hægt því það væri það stórt gat á þessum.  En viti menn, þetta svona svínvirkaði.  Það angraði mig svosem ekkert að hafa smá gat á kassanum, ég bætti bara á hann reglulega, kannski verra í vetur þegar þetta þarf nú að vera frostþolið :o ... seinnitímavandamál.
En maður er enn staddur á Akureyri, kom hingað 12 júní.  Það er bara búið að fara vel um mann hérna, fínasta veður.  Búinn að fara í nokkur party og veislur.  Asnaðist til að fara í sjallann, eða stubbasmiðjuna einsog ég kalla hann í dag, það er einsog eitthvað hafi gerst þarna, aldurstakmarkið lækkað eiða eitthvað hehe, já, það er það eina sem kemur til greina, annað getur það bara ekki verið ;)  Mér finnst svona fullungt lið þarna, og bara 17 ára, það væri nú skömminnni skárra ef það væri aðeins blandað.  Ég fór bæði 14. júní og 16. til að vera viss.  Samt þrátt fyrir það er ég að hugsa um að skella mér næstu helgi líka, á sálina.  Mér heyrist vera góð mæting á liði sem er yfir 25 ára.  Nema ég verði farinn suður aftur, það er allt í skoðun.  Langar pínu að sjá Björk og Sigurrós, hef aldrei verið aðdáandi en maður verður samt einhverntímann að sjá þessar skærustu stjörnur okkar live.
En svo er maður bara enn atvinnulaus, og leiðist það svosem ekkert.  Gæti alveg gert ekki neitt í marga marga mánuði.  Núna eru 1360 atvinnulausir í rvk, og virðist fjölga með hverjum deginum sem líður.  Það verður sennilega strembið að finna vinnu sem manni langar í á þessum síðustu og verstu tímum.  Ég er samt ekki búinn að gefa skólann alveg uppá bátiinn, það er möguleiki líka, ef maður kemst enn inn, eða inn yfir höfuð.
Þrátt fyrir atvinnuleysið þá hefur maður samt engann tíma fyrir bloggið, féll á mánuði að þessu sinni, það gerist ekki aftur.  Svo á ég nokkrar helgar í epsoninum sem ég á eftir að setja inn, varð að fara bíta á jaxlinn og drífa í þessu!!  Eða einsog spáin mín segir:
Vatnsberi: Þú er handviss um að það sem þú ætlar þér að gera sé gerlegt. En þú veist það ekki fyrr en þú hefur klárað það. Helltu þér út í verkið.]]>
Sunnan Hvíta
   <summary>Þessi Hvítasunnuhelgi var alveg með eindæmum góð ... erfið á köflum, en í heildina mjög skemmtileg. Hún byrjaði með því að strax eftir vinnu var haldið heim til að pakka niður, sturta sig og gera sig klárann fyrir helgarferð á...</summary>
      <![CDATA[Þessi Hvítasunnuhelgi var alveg með eindæmum góð ... erfið á köflum, en í heildina mjög skemmtileg.  Hún byrjaði með því að strax eftir vinnu var haldið heim til að pakka niður, sturta sig og gera sig klárann fyrir helgarferð á Selfossi.  En þar var einmitt vinnan með árshátíð á laugardeginum, Hótel Selfoss nánar tiltekið.  Þeir hörðustu taka alltaf aukanótt á hótelinu og fara á föstudeginum, ég lét mig ekki vanta í það, og var haldið fínasta herbergispartí og svo skelltum við okkur á Hvíta húsið, þar var hljómsveitin Dúndurfréttir að spila. Það hljómaði nú ekki freistandi í mínum eyrum, en það var bara ekkert um annað að velja.  Ekki skánaði það þegar ég sá að þetta voru tónleikar, þar sem allir sitja bara og hlusta spakir og góðir.  Við skárum okkur strax úr þarna á staðnum, pakkfullum af fólki.  En við malarhyskið fórum bara á barinn og þeir allra heimskustu ákváðu af fara í smá dans-off þar fyrir framan .. .það var alveg ótrúlega fyndið.  Ég veit ekki alveg hvað klukkan var þegar heim var komið, held hún hafi verið um 4, sem var svosem ekkert mál. Erfiðin byrjuðu daginn eftir, þegar við þurftum að rýma hótelið fyrir 12 :O ... það var hræðilegt.  En vegna fjölda mans og fárra herberja voru leigðir líka nokkrir sumarbústaðir í þyrpingu.  Og auðvitað var sniðugast í stöðunni að senda óþekkasta liðið þangað, enda gátum við aldeilis djammað þar að vild.  Einn lísti þessu svo vel að við værum ljóta frænkan í Árdegisfamilíunni, það yrði að bjóða okkur með en enginn vildi fá okkur hehe, þessvegna værum við sett í þessa vinnuskúra :)  ... mér fannst þetta fínt, mikið skemmtilegra en á hótelinu myndi ég halda.  En ég náði nær dauða en lífi að koma mér uppí bústaðina og eftir einn KFC skamt og tvær alkazeltser varð ég strax nokkuð góður ... og tilbúinn að takast á við átök kvöldsins.  Eftir skemmtidagskrá dagsinns var skellt sér á ný í "vinnuskúrana" og nokkrir bjórar opnaðir og skellt sér í nýju Amsterdömsku jakkafötin mín, sem sumir spurðu hvort ég myndi borða, þegar ég væri búinn að nota þau, því þau voru einsog lakkrís að sjá :p .. og skellt upp nýju greiðslunni, sem hefur fengið nafið "Óli Geir, syntiru hingað eða ... "  En þá er verið að vísa í að þetta svipar víst eitthvað til greiðslunnar hjá Óla Geir ... þarna ungfrú herra ísland, og syntiru er verið að gera grín af gelnotkuninni :p ... fyndið lið sem ég vinn með hehe.  Árshátíðin sjálf var náttúrulega snilld, maturinn góður og Skímó að spila, með Magna aukalegann.  Þetta var allt einsog á að vera .. opinn bar, skemmtilegt fólk og hress 90´s hljómsveit, enda var þetta bara mjög gaman. Daginn eftir byrjaði svo vítið á ný, en þá þurfti ljóta frænkan að rýma "vinnuskúrana" (sem ég held að séu ónýtir í dag) og skella sér heim.  Mér finnst það reyndar alveg útí hött að hafa þetta svona snemma, það er ekki einusinni runnið af fólki þegar það er að keyra heim.  Það voru nú reyndar rútur, en ég var á nissa og lagði í hann um hálf-2, fannst ég orðinn skikkanlegur þá.  Þó þetta hafi verið einsog full vinna, og allavega 2 mikilvæg líffæri í meltingarveginum séu hætt að starfa, þá væri ég alveg til í að endurtaka þetta alltsaman næstu helgi hehe.  En mikið var ljúft að fá mánudaginn í frí, til að jafna sig aðeins, ég hefði bara ekki meikað að mæta í vinnuna þá, nógu erfitt var það í dag. 
Mér finnst orðið svo langt síðan ég hef sett Bo myndbönd á bloggið mitt að ég ákvað að skella einu með hérna, til að bæta fyrir leiðinlega færslu :)  ... en þetta er úr nýjustu syrpunni hans sem heitir "Keith Lemon's Very Brilliant World Tour".  Og nú er Keith Lemon Business Man Of The Year 93' aðalhetjan, og engin brúðuandlit með þykkum gleraugum, eða Craiiiig Daaavid, sakna þeirra pínu.  Hann heimsækir 6 lönd um allan heim, þar á meðal Ísland, en 6. og síðasti þátturinn er tekinn hér.  Samt er þessi klippa úr þætti 2, Ástralíu, það er langfyndnasti þátturinn.  Ég þarf eiginlega að skella þeim á vikingbay, á þá alla tilbúna í það.  En það finnst sennilega engum þetta fyndið nema mér :)   Sjá Videó...
Svo eru það fastir liðir einsog venjulega:
Vatnsberi: Það er rétt, að maður þarf sjálfsaga til þess að láta hlutina gerast, en hann er samt gróflega ofmetinn. Þú þarft að búa til áætlun sem passar við frjálslegt viðhorf þitt.
...aint that the truff !?]]>