< Til Baka        Fleiri fréttir >

 



Mon 06. Feb 2012 - 11:15
Stapi tapaði 27,7 milljörðum
Endurskoðendur Stapa lífeyrissjóðs höfðu í júní 2009 samband við Fjármálaeftirlitið þar sem þeir höfðu ekki fengið staðfestingu á lögmæti viðskipta á aflandsmarkaði sem sjóðurinn var í. Stjórn sjóðsins var afar óánægð með viðbrögð endurskoðandans. Stapi tapaði 27,7 milljörðum á árunum 2008-2010.


Mon 06. Feb 2012 - 10:36
Sækja slasaðan göngumann
Verið er að undirbúa leiðangur til að aðstoða breskan göngumann sem er slasaður á hálendinu. Er talið að þurfi að flytja manninn með þyrlu á sjúkrahús.


Mon 06. Feb 2012 - 10:45
Töldu lán til Glitnis ekki álitleg
Lífeyrissjóður verslunarmanna komst að þeirri niðurstöðu í mars 2008 að þátttaka í skuldabréfaútboði Glitnis væri ekki álitleg. Þrettán sjóðir tóku þátt í útboðinu og töpuðu 10,7 milljörðum þegar bankinn féll sex mánuðum síðar.


Mon 06. Feb 2012 - 11:13
Afskrift Orkuveitunni í hag
Dómsátt sem gengið var frá á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Álftaness felur í sér um 30% afskrift af kröfu OR. Engu að síður telur fyrirtækið dómsáttina sér í hag.


Mon 06. Feb 2012 - 10:38
Vilja gegnsæja battavelli
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna í Reykjavík krefjast þess að við endurnýjun íþróttavalla á skólalóðum verði tryggt að veggi umhverfis þá séu úr gegnsæju efni. Erfitt geti verið að fylgjast með völlunum og hætta á að þar þrífist óæskileg hegðun.


Mon 06. Feb 2012 - 10:47
Stakk 10 ára stúlku í hálsinn
Tíu ára gömul stúlka var stungin í hálsinn á skólalóð í úthverfinu Angered, norðaustur af Gautaborg í Svíþjóð í morgun. Stúlkan er illa særð og leitar fjölmennt lögreglulið árásarmannsins.




Mon 06. Feb 2012 - 11:02
Hugsanlegt að björgunarsveitir taki gjald fyrir aðstoð í ófærð
Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður og björgunarsveitamaður segir að Slysavarnafélagið Landsbjörg verði að fara að íhuga hvort skynsamlegt yrði að taka gjald fyrir þjónustu sem veitt er þegar bílar eru dregnir út úr snjósköflum og ófærum.


Mon 06. Feb 2012 - 10:50
Sækja slasaðan ferðamann á hálendið - þyrla gæslunnar ræst út
Lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu í morgun um slasaðan ferðamann frá Bretlandi. Hann var að ganga frá Laugafelli suður í Nýjadal samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni og er einn á ferð.


Mon 06. Feb 2012 - 10:02
Madonna gerði allt vitlaust á Super Bowl
Super Bowl leikurinn fór fram í nótt en þar er um að ræða einn stærsta íþróttaviðburð sem fram fer í Bandaríkjunum ár hvert.


Mon 06. Feb 2012 - 11:01
Ástfangin Eva Longoria
Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria og unnusti hennar Eduardo Cruz voru mynduð á LAX flugvellinum í Los Angeles í gær.


Mon 06. Feb 2012 - 10:30
Leoncie svarar Tobbu Marínós
Leoncie hefur sent Tobbu Marínósdóttir tóninn fyrir pistil sem hún skrifaði á bloggsíðu sína um tónleika söngkonunnar á Gauki á Stöng í lok janúar.


Mon 06. Feb 2012 - 10:05
Fyrrverandi hjákona Kennedys leysir frá skjóðunni
Mimi Alford, ein af fyrrverandi hjákonum John F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur birt nýjar upplýsingar um samband þeirra í bók sem hún skrifaði.