a:7:{s:8:"encoding";s:5:"utf-8";s:4:"link";s:25:"http://ruv.is/rss/frettir";s:11:"description";s:9:"RÚV - RSS";s:8:"language";s:2:"is";s:13:"lastBuildDate";s:24:"Thu 01. Jan 1970 - 00:00";s:5:"items";a:20:{i:0;a:6:{s:5:"title";s:30:"Sækja slasaðan mann á hálendið";s:4:"link";s:51:"http://ruv.is/frett/saekja-slasadan-mann-a-halendid";s:11:"description";s:527:" Þyrla landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til að sækja erlendan ferðamann sem slasaðist á göngu á Hálendinu. Maðurinn, sem er breskur, er norðarlega á Sprengisandsleið, skammt frá vaðinu á Bergvatnskvísl. Hann er talinn handleggsbrotinn. Björgunarsveitir úr Eyjafirði eru á leið á vettvang. Maðurinn er einn á ferð og hugðist ganga frá Akureyri til Víkur í Mýrdal. Ekki er víst að þyrlan komist á staðinn, hvasst er á þessum slóðum og aðstæður frekar slæmar. ";s:8:"category";s:7:"Innlent";s:4:"guid";s:23:"225693 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 11:05";}i:1;a:6:{s:5:"title";s:21:"Emil Boc segir af sér";s:4:"link";s:41:"http://ruv.is/frett/emil-boc-segir-af-ser";s:11:"description";s:628:" Emil Boc, forsætisráðherra Rúmeníu, hefur sagt af sér vegna mótmæla gegn niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Mótmælin hafa staðið yfir síðustu þrjár vikur. Boc hefur meðal annars lagt til að laun opinberra starfsmanna verði skorin niður um 25%, auk þess sem eftirlaun verði fryst. Stjórnvöld segja niðurskurðinn nauðsynlegan svo næsta greiðsla neyðarláns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fáist greidd. Fyrirhugað er að halda kosningar í Rúmeníu í nóvember. Getgátur eru uppi um það að Traian Basescu, forseti landsins, fái embættismenn til að stjórna landinu þangað til.";s:8:"category";s:6:"Evrópa";s:4:"guid";s:23:"225691 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 11:00";}i:2;a:6:{s:5:"title";s:23:"Dæmdur fyrir líkamsárás";s:4:"link";s:46:"http://ruv.is/frett/daemdur-fyrir-likamsaras-2";s:11:"description";s:288:" Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Manninum var gefið að sök að hafa slegið annan mann hnefahöggi í andlitið fyrir utan félagsheimilið Valhöll á read more";s:8:"category";s:7:"Innlent";s:4:"guid";s:23:"225689 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 10:59";}i:3;a:6:{s:5:"title";s:32:"Tilnefningar til Eyrarrósarinnar";s:4:"link";s:52:"http://ruv.is/frett/tilnefningar-til-eyrarrosarinnar";s:11:"description";s:761:" Safnasafnið á Svalbarðseyri, Sjóræningjahúsið við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar í ár. Eyrarrósin, er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, og verður veitt í áttunda sinn á Bessastöðum þann 18. febrúar næstkomandi. Markmið verðlaunanna er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni og skapa sókarfræir á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Meðal verkefna sem hlotið hafa Eyrarrósina á undanförnum árum eru: Sumartónleikar í Skálholtskirkju, tónlistarhátíðin Bræðslan, Landnámssetrið í Borgarfirði og LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi.  ";s:8:"category";s:7:"Innlent";s:4:"guid";s:23:"225685 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 10:56";}i:4;a:6:{s:5:"title";s:30:"Hólmfríður og Katrín á reynslu";s:4:"link";s:50:"http://ruv.is/frett/holmfridur-og-katrin-a-reynslu";s:11:"description";s:434:" Knattspyrnukonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir spiluðu æfingaleik með norska liðinu Arna-Björnar í gær. Þær eru báðar samningslausar eftir að bandaríska atvinnumannadeildin var blásin af á dögunum. Það má sama má segja um fjöldann allan af sterkum leikmönnum sem leita sér nú að nýju félagi eftir að ljóst varð að ekkert verður spilað í Bandaríkjunum. ";s:8:"category";s:8:"Fótbolti";s:4:"guid";s:23:"225649 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 10:30";}i:5;a:6:{s:5:"title";s:23:"7 létust í jarðskjálfta";s:4:"link";s:43:"http://ruv.is/frett/7-letust-i-jardskjalfta";s:11:"description";s:595:" Að minnsta kosti sjö létu lífið þegar jarðskjálfti af stærðinni 6,8 reið yfir undan strönd Filippseyja í morgun. Mikil hræðsla greip um sig í borgum þar sem hús hristust og sveifluðust til. Auk þess fór orðrómur á kreik um að risastór flóðbylgja stefndi að landi. Flóðbylgjuviðvörunarstofnun Kyrrahafsins segir þó ekki hættu á stórri flóðbylgju. Skjálftinn olli því meðal annars að sprungur mynduðust á vegum, brýr skemmdust og truflanir urðu á rafmagni.Upptök skjálftans voru um 70 kílómetrum norður af borginni Dumaguete á Negros-eyju.";s:8:"category";s:4:"Asía";s:4:"guid";s:23:"225664 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 10:08";}i:6;a:6:{s:5:"title";s:14:"Alltaf í stuði";s:4:"link";s:34:"http://ruv.is/frett/alltaf-i-studi";s:11:"description";s:398:" Dreifikerfi raforkunnar á heimili landsmanna, og til stórnotenda, er að stærstum hluta stýrt úr einu herbergi í Grafarvoginum, höfuðstöðvum Landsnets. Þangað berasta þúsundir af gögnum á hverjum klukkutíma frá raforkumannvirkjum vítt og breytt um landið og þaðan er brugðist við ef eitthvað kemur upp á. Vertu vinur Landans á Facebook.";s:8:"category";s:7:"Mannlíf";s:4:"guid";s:23:"225659 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:52";}i:7;a:6:{s:5:"title";s:28:"Vélsleðasafn í Kristjánsborg";s:4:"link";s:48:"http://ruv.is/frett/velsledasafn-i-kristjansborg";s:11:"description";s:304:" Saga vélsleðans á Íslandi er í grófum dráttum þannig að bændur fara að nota sleða um 1965 og á næstu árum verða sleðar almenningseign. Kristján Auðunsson í Stykkishólmi er forfallinn vélsleðamaður en fyrsta sleðann eignaðist hann1984. read more";s:8:"category";s:10:"Vesturland";s:4:"guid";s:23:"225657 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:51";}i:8;a:6:{s:5:"title";s:29:"Kristinn dæmir úrslitaleikinn";s:4:"link";s:50:"http://ruv.is/frett/kristinn-daemir-urslitaleikinn";s:11:"description";s:443:" Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson mun dæma úrslitaleikinn á La Manga-æfingamótinu á Spáni. Norska knattspyrnusambandið sér um framkvæmd mótsins og bauð Kristni að dæma en honum til aðstoðar eru Birkir Sigurðarson og Smári Stefánsson. FC Kaupmannahöfn og Spartak Moskva spila til úrslita en með fyrrnefnda liðinu leika varnarmennirnir Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson. ";s:8:"category";s:8:"Fótbolti";s:4:"guid";s:23:"225648 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:50";}i:9;a:6:{s:5:"title";s:31:"Noriega úr fangelsi á sjúkrahús";s:4:"link";s:51:"http://ruv.is/frett/noriega-ur-fangelsi-a-sjukrahus";s:11:"description";s:451:" Manuel Noriega, fyrrverandi einræðisherra í Panama, var í gær fluttur úr fangaklefa sínum og á sjúkrahús vegna hugsanlegs heilablóðfalls. Noriega, sem er 77 ára, var í desember framseldur til Panama eftir að hafa setið í fangelsi í Bandaríkjunum og Frakklandi í 22 ár. Í Panama beið hans 20 ára dómur fyrir morð. Hann er bundinn við hjólastól og á erfitt með að tala vegna fyrri heilablóðfalla";s:8:"category";s:21:"Mið- og Suður-Ameríka";s:4:"guid";s:23:"225654 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:41";}i:10;a:6:{s:5:"title";s:19:"Varað við 30-40 m/s";s:4:"link";s:38:"http://ruv.is/frett/varad-vid-30-40-ms";s:11:"description";s:460:" Vegagerðin varar við snörpum vindhviðum, 30-40 m/s, á norðanverðu Snæfellsnesi í dag og fram undir kvöld. Það er hálka víða um land og sum staðar glerhált, eins og á Grafningsvegi, Fróðarheiði, Holtavörðuheiði, í Ísafjarðdjúpi, á Vatnsfjarðarhálsi, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Klettshálsi, Kleifaheiði,  á milli Sauðárkróks og Hofsós og á Mývatnsheiði. Þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum.";s:8:"category";s:7:"Innlent";s:4:"guid";s:23:"225650 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:27";}i:11;a:6:{s:5:"title";s:31:"Capello ósáttur við ákvörðun FA";s:4:"link";s:51:"http://ruv.is/frett/capello-osattur-vid-akvordun-fa";s:11:"description";s:633:" Ítalinn Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, er ósáttur við ákvörðun enska knattspyrnusambandsins að svipta John Terry fyrirliðabandinu. Terry sætir nú lögreglurannsókn vegna meints kynþáttaníðs á knattspyrnuvellinum en Capello sagði við ítalska ríkissjónvarpið í gær að hann teldi að ekkert ætti að gera í málinu fyrr en rannsókninni væri lokið. Enska sambandið tók fram fyrir hendurnar á Capello fyrir helgi og svipti Terry fyrirliðastöðunni en ítalski landsliðsþjálfarinn hefði kosið að leikmaðurinn gegndi stöðunni fram yfir Evrópumótið í sumar. ";s:8:"category";s:16:"EM í knattspyrnu";s:4:"guid";s:23:"225643 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:25";}i:12;a:6:{s:5:"title";s:28:"Mikil hálka á Bretlandseyjum";s:4:"link";s:48:"http://ruv.is/frett/mikil-halka-a-bretlandseyjum";s:11:"description";s:252:" Varað er við mikilli hálku á Bretlandseyjum í dag. Mikil snjókoma um helgina varð til þess að 42% flugferða um Heathrow-flugvöll við Lundúnir var aflýst í gær. Flug gengur samkvæmt áætlun í dag. ";s:8:"category";s:6:"Evrópa";s:4:"guid";s:23:"225646 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:15";}i:13;a:6:{s:5:"title";s:24:"Malí komst í undanúrslit";s:4:"link";s:44:"http://ruv.is/frett/mali-komst-i-undanurslit";s:11:"description";s:398:" Fjórðungsúrslitum Afríkumótsins í knattspyrnu lauk í gærkvöld með tveimur leikjum. Malí komst í undanúrslit með sigri á Gabon í vítaspyrnukeppni. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Ghana vann Túnis 2-1 eftir framlengingu. Ghana mætir Fílabeinsströndinni í undanúrslitunum á miðvikudag. Malí leikur gegn Sambíu.  ";s:8:"category";s:8:"Fótbolti";s:4:"guid";s:23:"225644 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:15";}i:14;a:6:{s:5:"title";s:34:"Gylfi hefur skorað í öllum deildum";s:4:"link";s:54:"http://ruv.is/frett/gylfi-hefur-skorad-i-ollum-deildum";s:11:"description";s:684:" Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson sem er á láni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu náði merkilegum áfanga um helgina. Eftir mark hans gegn West Bromwich í úrvalsdeildinni hefur Gylfi skorað öllum fjórum efstu deildunum á Englandi. Hann skoraði fyrir Shrewsbury og Crewe í tveimur neðstu deildunum og þá raðaði hann inn mörkum fyrir Reading í fyrstu deildinni, áður en hann var seldur til Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni. Hann hefur slegið í gegn hjá Swansea frá því hann kom til félagsins í síðasta mánuði en auk þess að skora jöfnunarmark liðsins gegn WBA um helgina lagði hann upp sigurmarkið. ";s:8:"category";s:8:"Fótbolti";s:4:"guid";s:23:"225641 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:05";}i:15;a:6:{s:5:"title";s:19:"Sprengjuregn í Homs";s:4:"link";s:39:"http://ruv.is/frett/sprengjuregn-i-homs";s:11:"description";s:777:" Að minnsta kosti 12 eru látnir og tugir særðir eftir að sýrlenski herinn hóf sprengjuárásir að nýju í morgun á borgina Homs. Skotið er á nokkur íbúðarhverfi í miðborginni. Hvítir reykjarsveppir stigu upp þar sem sprengjum rigndi yfir íbúðarhverfi og ómur bænakalls barst frá moskum. Íbúarnir segja að ástandið sé skelfilegt. Yfir 200 íbúar í Homs voru drepnir á föstudag þegar herinn skaut með skriðdrekasprengjum og naglasprengum á íbúðarhverfi. 23 óbreyttir borgarar voru drepnir í borginni í gær. Kínastjórn mótmælti í morgun ásökunum Bandaríkjastjórnar um að Kínverjar ásamt Rússum væru að verja stjórnvöld í Sýrlandi með því að beita neitunarvaldi gegn ályktun Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna um að fordæma blóðbaðið.";s:8:"category";s:6:"Erlent";s:4:"guid";s:23:"225640 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:03";}i:16;a:6:{s:5:"title";s:34:"Iceland Express: 57% á réttum tíma";s:4:"link";s:52:"http://ruv.is/frett/iceland-express-57-a-rettum-tima";s:11:"description";s:380:" Þrjár af hverjum fjórum flugferðum Icelandair til og frá landinu voru á réttum tíma síðari hluta janúar. Hjá Iceland Express var hlutfallið 57 prósent. Þetta kemur fram hjá vefsíðunni turisti.is. Líkt og oft áður standast komutímar síður en brottfarartímar hjá fyrirtækjunum. Bæði félög bættu sig þó hvað það varðar. ";s:8:"category";s:7:"Innlent";s:4:"guid";s:23:"225639 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:02";}i:17;a:6:{s:5:"title";s:26:"Buðu heilum hreppi í kaffi";s:4:"link";s:46:"http://ruv.is/frett/budu-heilum-hreppi-i-kaffi";s:11:"description";s:504:" Þegar Kvenfélagasamband Íslands var stofnað fyrir rúmum áttatíu árum síðan voru markmiðin m.a. að efla heimilisiðnað og húsmæðrafræðslu. En hvað eru kvenfélagskonur að sýsla hátt í einni öld síðar? Landinn mælti sér mót við Kvenfélag Hvammshrepps í félagsheimilinu í Vík í Mýrdal. Meðlimir þess voru í óðaönn að undirbúa kaffiboð fyrir Mýrdælinga með félögum sínum í Kvenfélaginu Ljósbrá og Kvenfélagi Dyrhólahrepps.Vertu vinur Landans á Facebook.";s:8:"category";s:9:"Suðurland";s:4:"guid";s:23:"225637 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 09:01";}i:18;a:6:{s:5:"title";s:24:"Skyrið í sókn í New York";s:4:"link";s:44:"http://ruv.is/frett/skyrid-i-sokn-i-new-york";s:11:"description";s:594:" MS stefnir að því að tvöfalda sölu á skyri í New York þannig að íslenskt skyr verði í boði í 1000 verslunum þar á næstu 12 til 20 mánuðum. Í dag er sala á skyri 120 tonn á ári, eða um 720 þúsund dósir. Í janúar var gengið frá nýjum dreifingarsamningi við bandaríska ferskvörudreifingarfyrirtækið Gourmet Guru Inc í New York en það sérhæfir sig í dreifingu á náttúrulegum og lífrænum gæða mjólkurvörum og þjónustar 1.500 verslanir á New york svæðinu. Samkeppnin er hörð á þessum slóðum en þar búa jafn margir og í allri Skandinavíu. ";s:8:"category";s:7:"Innlent";s:4:"guid";s:23:"225634 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 08:38";}i:19;a:6:{s:5:"title";s:37:"Náðu samkomulagi um bráðabirgðastjórn";s:4:"link";s:57:"http://ruv.is/frett/nadu-samkomulagi-um-bradabirgdastjorn";s:11:"description";s:457:" Helstu fylkingar Palestínumanna Hamas og Fatah hafa náð samkomulagi um myndun bráðabirgðastjórnar. Samkomulag er um að Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna verði í forsæti stjórnarinnar sem á að undirbúia forseta- og þingkosningar. Abbas og Khaled Meshaal yfirmaður Hamas hittust í Doha höfuðborg Qatar í gær til þess að  ákveða framkvæmd friðarsamkomulags sem náðist milli fylkinganna í fyrra.";s:8:"category";s:6:"Erlent";s:4:"guid";s:23:"225627 at http://ruv.is";s:7:"pubDate";s:24:"Mon 06. Feb 2012 - 08:10";}}s:11:"items_count";i:20;}