Mon 06. Feb 2012 - 11:05
Sækja slasaðan mann á hálendið
Þyrla landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til að sækja erlendan ferðamann sem slasaðist á göngu á Hálendinu. Maðurinn, sem er breskur, er norðarlega á Sprengisandsleið, skammt frá vaðinu á Bergvatnskvísl. Hann er talinn handleggsbrotinn. Björgunarsveitir úr Eyjafirði eru á leið á vettvang.
Maðurinn er einn á ferð og hugðist ganga frá Akureyri til Víkur í Mýrdal. Ekki er víst að þyrlan komist á staðinn, hvasst er á þessum slóðum og aðstæður frekar slæmar.
Mon 06. Feb 2012 - 11:00
Emil Boc segir af sér
Emil Boc, forsætisráðherra Rúmeníu, hefur sagt af sér vegna mótmæla gegn niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Mótmælin hafa staðið yfir síðustu þrjár vikur.
Boc hefur meðal annars lagt til að laun opinberra starfsmanna verði skorin niður um 25%, auk þess sem eftirlaun verði fryst. Stjórnvöld segja niðurskurðinn nauðsynlegan svo næsta greiðsla neyðarláns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fáist greidd. Fyrirhugað er að halda kosningar í Rúmeníu í nóvember. Getgátur eru uppi um það að Traian Basescu, forseti landsins, fái embættismenn til að stjórna landinu þangað til.
Mon 06. Feb 2012 - 10:59
Dæmdur fyrir líkamsárás
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.
Manninum var gefið að sök að hafa slegið annan mann hnefahöggi í andlitið fyrir utan félagsheimilið Valhöll á
read more
Mon 06. Feb 2012 - 10:56
Tilnefningar til Eyrarrósarinnar
Safnasafnið á Svalbarðseyri, Sjóræningjahúsið við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar í ár.
Eyrarrósin, er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, og verður veitt í áttunda sinn á Bessastöðum þann 18. febrúar næstkomandi. Markmið verðlaunanna er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni og skapa sókarfræir á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Meðal verkefna sem hlotið hafa Eyrarrósina á undanförnum árum eru: Sumartónleikar í Skálholtskirkju, tónlistarhátíðin Bræðslan, Landnámssetrið í Borgarfirði og LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi.
Mon 06. Feb 2012 - 10:30
Hólmfríður og Katrín á reynslu
Knattspyrnukonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir spiluðu æfingaleik með norska liðinu Arna-Björnar í gær.
Þær eru báðar samningslausar eftir að bandaríska atvinnumannadeildin var blásin af á dögunum. Það má sama má segja um fjöldann allan af sterkum leikmönnum sem leita sér nú að nýju félagi eftir að ljóst varð að ekkert verður spilað í Bandaríkjunum.
Mon 06. Feb 2012 - 10:08
7 létust í jarðskjálfta
Að minnsta kosti sjö létu lífið þegar jarðskjálfti af stærðinni 6,8 reið yfir undan strönd Filippseyja í morgun. Mikil hræðsla greip um sig í borgum þar sem hús hristust og sveifluðust til.
Auk þess fór orðrómur á kreik um að risastór flóðbylgja stefndi að landi. Flóðbylgjuviðvörunarstofnun Kyrrahafsins segir þó ekki hættu á stórri flóðbylgju. Skjálftinn olli því meðal annars að sprungur mynduðust á vegum, brýr skemmdust og truflanir urðu á rafmagni.Upptök skjálftans voru um 70 kílómetrum norður af borginni Dumaguete á Negros-eyju.
Mon 06. Feb 2012 - 11:23
Handleggsbrotinn á Sprengisandsleið
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að sækja erlendan ferðamann sem slasaðist á göngu. Greint er frá þessu á vef Ríkisútvarpsins en ferðamaðurinn er breskur og sagður vera norðarlega á Sprengisandsleið, skammt frá vaðinu í Bergvatnskvísl. Hann er sagður handleggsbrotinn og eru björgunarsveitir úr Eyjafirði á leiðinni á vettvang.
Lesa meira →
Mon 06. Feb 2012 - 10:59
Þessi þungu högg
Áskorandinn Steve "USS" Cunningham, frá Bandaríkjunum, fær hér þungt högg frá Yoan Pablo Hernandez, frá Kúbu, í bardaga þeirra um heimsmeistaratitilinn í léttþungavikt sem fór fram í Frankfurt, Þýskalandi, fjórða febrúar síðastliðinn. Hernandez var dæmdur sigur eftir tólf lotur.
Lesa meira →
Mon 06. Feb 2012 - 10:52
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter
Leikarinn Daniel Radcliffe segist hafa verið mjög ölvaður á meðan tökum á kvikmyndum um galdrastrákinn Harry Potter stóð. "Ég fór í vinnu mjög fullur," segir Radcliffe við Heat tímaritið.
Lesa meira →
Mon 06. Feb 2012 - 10:29
Óeðlilegur titringur í Þór
Varðskipið Þór lagði af stað til Bergen í Noregi í gær en Rolls Royce þar í landi mun ljúka framkvæmdum við skipið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni en framkvæmdirnar eru vegna óeðlilegs titrings í aðalvél skipsins.
Lesa meira →
Mon 06. Feb 2012 - 10:19
Garðyrkjustjóri sagður hafa dregið sér fé til að borga laun starfsmanna
Í dag fer fram aðalmeðferð í máli Kristins H. Þorsteinssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Orkuveitu Reykjavíkur, en sérstakur saksóknari hefur ákært hann fyrir fjárdrátt
Lesa meira →
Mon 06. Feb 2012 - 10:19
Svali hættur á FM957
"Ég sagði upp í síðustu viku. Ég er búin að vera í 20 ár þannig að þetta er bara komið gott. Ég er búinn að vera meira en helming ævinnar í þessu," segir útvarpsmaðurinn Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali á FM eins og hann er gjarnan kallaður. Hann ákvað að yfirgefa útvarpsstöðina FM957 eftir að hafa starfað þar í rúmlega tvo áratugi.
Lesa meira →